Grein ✳ birt á Vísi

Flestir nota gervigreind eins og leitarvél

Samantekt. Greinin birtist á Vísi 28. júlí 2026.

Sífellt fleiri Íslendingar nota gervigreind með einhverjum hætti, en ég heyri alltaf það sama: flestir nota hana eins og leitarvél, spyrja einnar spurningar, fá svar. En það er hægt að gera svo miklu meira með henni.

Í stað þess að svara stökum spurningum getur gervigreind unnið heil verkefni með þér frá upphafi til enda. Þú kemur með hugmyndina, hún stingur upp á leiðum, þið skipuleggið og veljið bestu leiðina saman og hún sér um handavinnuna. Þú ferð svo yfir lokaniðurstöðuna.

Aðstoðarmaður frekar en forrit

Stærsta skrefið er viðhorfsbreyting, að hætta að hugsa um gervigreind sem enn eitt forritið sem þarf að læra á og byrja að hugsa um hana sem aðstoðarmann. Þú getur beðið um hvað sem er, en þú ákveður hvað er gert og hvað er sent frá þér. Gervigreind getur haft rangt fyrir sér, þess vegna les maður alltaf yfir það sem kemur frá henni.

Þannig byrjaði ég sjálf. Ég lét Claude vinna með mér í öllu sem ég var að gera og lærði hægt og rólega hvað Claude gerir vel og illa. Í dag heldur Claude utan um verkefnalistann minn og fer með mér í gegnum pósthólfið á morgnana.

En ég er ekki tæknimanneskja

Þetta heyri ég oftast. Ég vinn með fólki á öllum aldri og úr öllum áttum, þar á meðal fólki sem segist ekki vera tæknimanneskjur. Það kemur fólki á óvart hvað það er auðvelt að byrja. Ef þú getur skrifað skilaboð til vinkonu þá geturðu notað gervigreind. Þú skrifar bara á íslensku eins og þú talar, segir hvað þig vantar og ferð svo yfir það sem kemur til baka. Tólin eru orðin miklu betri í íslensku en margir halda og það þarf ekkert tæknimál.

Hitt sem ég heyri er ótti. Sumir eru hræddir um að tæknin taki af þeim starfið, aðrir skammast sín fyrir að vera ekki löngu byrjaðir. Hvort tveggja er skiljanlegt en hvort tveggja heldur fólki frá. Mín reynsla er einföld: fólkið sem prófar hættir að vera hrætt. Óvissan er verst áður en maður byrjar.

Gerum minna, afköstum meira

Samfélagið segir okkur stanslaust að við þurfum að gera meira. Vakna fyrr, vinna hraðar, bæta við okkur. Ég vil snúa þessu við: með gervigreind getum við gert minna en samt afkastað meira. Þá verður til meiri frítími. Tíminn sem þú færð til baka er alvöru og þú ákveður í hvað hann fer.

Greinin birtist upphaflega á Vísi. Hér að ofan er samantekt í styttra máli. Alla greinina má lesa á Vísi: „Flestir nota gervigreind eins og leitarvél“, 28. júlí 2026.

Mig langar að kenna þér þetta

Ég kenni einmitt á þetta á Claude námskeiðunum mínum. Tveir morgnar á íslensku, engin forkunnátta og engin forritun. Stór partur af námskeiðinu eru verkefni, þú vinnur í þínum eigin og ferð heim með Claude sem gerir handavinnuna fyrir þig. Ertu að hugsa fyrir heilan vinnustað? Þá er fyrirtækjanámskeiðið rétta leiðin.

Sjá námskeiðið
Allar greinar