Fyrirtækjanámskeið

Fólkið ykkar lærir að láta Claude vinna fyrir sig

Hæ, ég heiti Þórdís og ég vil endilega kenna hópnum ykkar að láta Claude gera öll leiðinlegu verkefnin. Ég kenni á íslensku og sníð allt að tólunum og verkferlunum sem þið notið nú þegar, hjá ykkur eða hjá mér í Borgartúni 29.

1.790.000 kr. + VSK Allt að 15 þátttakendur
Þórdís Jóna kennir Claude námskeið, á tjaldinu að baki stendur Hvað er Claude?

Námskeiðið er svona

Við byrjum á undirbúningsfundi þar sem ég kynnist ykkur, markmiðunum, tólunum og hópnum sem er að koma. Út frá honum sníð ég námskeiðið að ykkur, þess vegna vinnur fólkið allan tímann í sínum eigin verkefnum en ekki tilbúnum dæmum. Svo veljið þið hvort ég kem til ykkar eða hópurinn kemur til mín í Borgartún 29, sumum finnst einmitt frískandi að skreppa í annað umhverfi til að læra.

Verð
1.790.000 kr. + VSK fyrir námskeiðið
Þátttakendur
Allt að 15
Kennslutungumál
Íslenska
Staður
Hjá ykkur eða í Borgartúni 29, eftir því hvort hentar betur
Kennslutímar
9 klukkustundir: tveir kennsludagar og þrír eftirfylgnitímar
Kennari
Þórdís Jóna Ingigerðardóttir, tölvunarfræðingur og stofnandi Revera
Forkunnátta
Engin nauðsynleg

Allt að 90% styrkur

Mörg stéttarfélög og starfsmenntasjóðir styrkja fræðslu sem þessa og margir vinnustaðir sækja um mótframlag í gegnum Áttina. Upphæðin fer eftir sjóði hvers félags og stöðu vinnustaðarins hjá honum, svo endilega kannið réttinn ykkar áður en þið gangið frá kaupum. Skilyrðin má lesa hjá Starfsmennt.

Ég sendi ykkur reikning með tímafjölda og staðfestingu á þátttöku fyrir hvern þátttakanda fyrir umsóknina.

Byrjum á kaffispjalli

Sendu mér nokkrar línur um vinnustaðinn, hópinn og tólin sem þið notið, þá heyri ég í þér og við finnum dagsetningu sem hentar ykkur.

thordis@revera.is

Hvað er innifalið

Það sem ég vil síst er að fólk fari heim af fínu námskeiði og haldi svo áfram að vinna eins og áður. Þess vegna fylgi ég hópnum eftir næstu vikurnar: fólk fær tíma til að byrja sjálft, svo hittumst við aftur, lögum það sem strandar og bætum við.

Fyrir fólk í alls konar störfum

Námskeiðið er ekki fyrir forritara, ég bjó það til fyrir fólk í alls konar störfum sem situr í handavinnu á hverjum degi: skjölum, tölvupóstum, skýrslum og skipulagi. Það þarf enga forkunnáttu, allt er kennt á mannamáli. Ef fólkið þitt notar gervigreind eins og leitarvél, spyr spurningar og lokar glugganum, þá er þetta einmitt hópurinn minn.

Það sem hver og einn tekur með sér

Þórdís Jóna Ingigerðardóttir

Gervigreind er ekki mannleg en ég er það. Ég er tölvunarfræðingur, frumkvöðull og stofnandi Revera, hef unnið í hugbúnaði í áratug en skemmtilegast finnst mér samt að sitja hjá fólki og sjá það uppgötva að þetta er ekkert flókið. Svo er ég líka jógakennari og reiki heilari, ef hópurinn er heppinn heila ég hann í leiðinni.

Ef þið viljið að ég geri meira fyrir ykkur

Verðið á námskeiðinu er fyrir kennsluna, enda er það hún sem sjóðirnir geta tekið þátt í. Viljið þið svo að ég geri eitthvað fyrir ykkur utan kennslunnar, til dæmis að setja upp kerfi eða vinna verkefni, þá geri ég það glöð. Það heitir ráðgjöf og kemur á sínu eigin verði og sínum eigin reikningi.

Ég held þessu tvennu alveg aðskildu fyrir ykkur, sjóðirnir hafna nefnilega umsóknum þar sem ráðgjöf er blandað saman við námskeið. Aðskilnaðurinn ver styrkumsóknina ykkar.

Umsagnir og umfjöllun

Ég gæti talað endalaust um námskeiðið sjálf, en það hljómar betur frá öðrum. Hér eru orð þeirra sem hafa setið það og umfjöllun fjölmiðla.

Námskeiðið var mjög gagnlegt, Þórdís leiddi okkur áfram á skipulegan, styðjandi og skemmtilegan hátt. Andrúmsloftið á námskeiðinu var hvetjandi og óþvingað því Þórdís hefur góða nærveru og er frábær kennari. Eftir námskeiðið erum við að stíga okkar fyrstu skref í að nota Claude sem vinnutól við fjölbreytt verkefni í síbreytilegu og krefjandi skólaumhverfi. Við stefnum á framhaldsnámskeið.
Árdís Hrönn og Inga Sif, skólastjórnendur í leikskólanum Tjarnarseli í Reykjanesbæ
Frábært námskeið sem gaf mér góð tök á Claude strax frá fyrsta degi námskeiðs og ég gat strax nýtt mér það sem ég lærði. Þórdís er einstaklega góður kennari og námskeiðið vel upp byggt. Maður fékk aðgang að efni sem hún hefur verið að byggja upp allt frá því Claude kom út sem er alveg ótrúlega dýrmæt vitneskja. Ég mæli alveg hiklaust með þessu fyrir öll þau sem vilja læra á gervigreindarverkfæri á skemmtilegan og aðgengilegan hátt!
Hildur Björk Scheving, markaðsstjóri Prís

Í fjölmiðlum

Heyrumst!

Ef þú last alla leið hingað niður er áhuginn greinilega til staðar. Ég svara fljótt og hlakka til að heyra frá ykkur!

thordis@revera.is
Sjá námskeiðið fyrir einstaklinga

Spurt og svarað

Hversu margir þátttakendur geta verið á fyrirtækjanámskeiði?

Allt að 15 þátttakendur eru innifaldir í verðinu, 1.790.000 kr. + VSK fyrir námskeiðið.

Hvar og yfir hvaða tímabil er fyrirtækjanámskeiðið kennt?

Þið veljið hvort ég kem til ykkar eða hópurinn kemur í aðstöðu Revera í Borgartúni 29. Kennsludagarnir tveir eru í röð og eftirfylgnitímarnir þrír koma á eftir, sá fyrsti um þrem vikum eftir námskeiðið, þá þrem vikum síðar og loks þrem vikum eftir það. Dagsetningar eru ákveðnar með hverjum vinnustað.

Þurfa þátttakendur að hafa forritunarreynslu?

Nei. Námskeiðið er ætlað fólki í fjölbreyttum störfum, ekki forriturum. Engin forkunnátta er nauðsynleg og allt er kennt á mannamáli.

Hvað þarf vinnustaðurinn að hafa til reiðu fyrir fyrsta kennsludaginn?

Hver þátttakandi þarf tölvu og Claude áskrift. Claude forritið þarf að vera sótt í tölvuna fyrir námskeiðið. Á námskeiðinu er unnið í Claude Cowork sem virkar bara í forritinu, ekki í vafranum.

Fylgir uppsetning eða ráðgjöf með námskeiðinu?

Nei. Verðið á námskeiðinu er fyrir kennsluna. Þurfi vinnustaðurinn aðstoð umfram hana, til dæmis við uppsetningu kerfa, er það ráðgjöf sem er sérstakur liður með sitt eigið verð og sinn eigin reikning. Ráðgjöf er aldrei styrkhæf, svo þessu tvennu er haldið aðskildu til að verja styrkumsókn vinnustaðarins.

Geta fyrirtæki sótt um mótframlag í starfsmenntasjóði fyrir námskeiðið?

Margir vinnustaðir sækja um mótframlag í starfsmenntasjóði vegna fræðslu sem þessarar, í gegnum Áttin. Rétturinn fer eftir sjóði hvers félags og stöðu vinnustaðarins hjá honum, svo það þarf að kanna hann áður. Revera sendir reikning með tímafjölda og staðfestingu á þátttöku fyrir umsóknina.