Teymið ykkar finnur hvar Claude sparar mestan tíma
Tveggja daga námskeið fyrir vinnustaði. Fyrri daginn lærir teymið á Claude. Seinni daginn finnur lykilfólk úr hverri deild ferlin sem Claude á að taka að sér og kortleggur þau.
Námskeiðið er svona
- Undirbúningsfundur um ferlana, deildirnar og tólin ykkar
- Dagur 1, grunnnámskeið, kl. 9-12: allir læra á Claude með því að vinna alvöru verkefni úr sínu starfi. Samhengi og minni, reglur, öryggi, færni (e. skills), verkefni (e. projects), áætluð verk, artifacts og viðbætur (e. plugins)
- Dagur 2, framhaldsnámskeið, kl. 9-13:30: hugarflug með lykilfólki úr hverri deild um hvað Claude á að gera fyrir ykkur. Svo flokkum við og forgangsröðum, veljum 2-3 ferli og kortleggjum þau skref fyrir skref: hvað gerist, hvaða gögn þarf og hvaða tengingar vantar
- Kennt hjá ykkur eða í Borgartúni 29
Nokkrum dögum eftir vinnustofuna fáið þið samantekt með kortlögðu ferlunum sem hægt er að setja beint inn í Claude.
Fyrir hverja
Vinnustaði sem vilja að allt teymið læri á Claude og að deildirnar finni og kortleggi sín eigin vinnuferli. Allir koma á dag 1. Á dag 2 mætir lykilfólk úr hverri deild, fólkið sem þekkir ferlana best.
Styrkir og mótframlag
Stéttarfélög og starfsmenntasjóðir geta styrkt námskeiðið, en það er ákvörðun sjóðsins. Vinnustaðir sækja um mótframlag í gegnum Áttina. Revera sendir reikning með tímafjölda og staðfestingu á þátttöku hvers þátttakanda.
Vantar eitthvað fleira
Það er svo mismunandi hvað vantar þegar kemur að gg tökum endilega spjallið og finnum bestu leiðina fyrir þig!
Byrjum á tespjalli
Sendu mér línu á thordis@revera.is og við finnum dagsetningu.
thordis@revera.is