Grein ✳ birt á Vísi

Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér?

Samantekt. Greinin birtist á Vísi 7. ágúst 2026.

Gervigreindin gerir okkur öllum kleift að vinna miklu hraðar. En í stað þess að hvílast finnum við okkur bara fleiri verkefni. Verkefnin klárast aldrei.

Vinnusýkin virðist vera okkur Íslendingum í blóð borin og við mælum eigið virði í afköstum. Ég er engin undantekning, vinnan mín hefur alltaf verið áhugamálið mitt. Núna með komu gervigreindar er tækifæri til að snúa þessu við. Ég er með tillögu: gerum minna.

Kæri stjórnandi, hvað með sex tíma vinnudag?

Þegar styttri vinnuvikan var prófuð hér á árunum 2015 til 2019, hjá yfir 2.500 manns á óbreyttum launum, leið fólki betur og það hafði meiri orku fyrir hreyfingu, vini og áhugamál. Það skilaði sér í afköstunum: framleiðni hélst sú sama eða jókst. Ég hef sjálf gert þessa tilraun sem atvinnurekandi: starfsfólkið mitt vann bara 6 tíma á dag og við sáum engan mun á afköstum, en starfsánægjan jókst.

Þetta gerðum við áður en gervigreindin kom til sögunnar. Núna þegar hún tekur við stórum hluta af rútínuvinnunni er ekkert því til fyrirstöðu að taka næsta skref. Kæri atvinnurekandi, kæri stjórnandi, hvað með 6 tíma vinnudag á sömu launum?

Leiðinn er ofurkraftur

En styttri vinnudagur skilar engu ef við fyllum lausu tímana jafnóðum með fleiri verkefnum og fleiri skyldum. Ég man hvernig það var að vera til fyrir internetið. Það var pláss til að láta sér leiðast og úr því spratt allt mögulegt: leikir, hugmyndir, dagdraumar. Hugurinn þarf tómarúm til að skapa.

Í dag fyllum við hverja einustu eyðu með símanum. Í biðröðinni, á umferðarljósunum, í auglýsingahléinu, alltaf fer síminn á loft. Við erum svo upptekin að við höfum ekki einu sinni tíma til að hugsa. Svo leggjumst við á koddann og þá kemur hugsunarskuldin: allt sem við áttum eftir að hugsa yfir daginn heldur fyrir okkur vöku.

Tíminn sem gervigreindin gefur okkur til baka er einmitt svona hversdagstími: meiri tími fyrir sköpun og tengingar, meiri tími til að anda og njóta. Næst þegar tæknin sparar þér klukkutíma, ekki fylla hann. Farðu út að ganga, leyfðu þér að láta þér leiðast.

Greinin birtist upphaflega á Vísi. Hér að ofan er samantekt í styttra máli. Alla greinina má lesa á Vísi: „Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér?“, 7. ágúst 2026.

Mig langar að kenna þér þetta

Ég kenni einmitt á þetta á Claude námskeiðunum mínum. Tveir morgnar á íslensku, engin forkunnátta og engin forritun. Stór partur af námskeiðinu eru verkefni, þú vinnur í þínum eigin og ferð heim með Claude sem gerir handavinnuna fyrir þig. Ertu að hugsa fyrir heilan vinnustað? Þá er fyrirtækjanámskeiðið rétta leiðin.

Sjá námskeiðið
Allar greinar