Grein

Þú þarft bara eitt gervigreindartól

24. ágúst 2026

Í hverri viku fæ ég sömu spurninguna: hver er eiginlega munurinn á Claude, ChatGPT, Gemini og Copilot? Algengasta umræðan um gervigreind á Íslandi er um stóru málin, hvort hún gjörbreyti tugþúsundum starfa og hvað hún þýðir fyrir framtíðina, en þessi hversdagslega spurning situr eftir ósvöruð. Flestir nota gervigreind eins og betrumbætta leitarvél, spyrja spurninga og fá svör til baka. Margir byrjuðu í ChatGPT af því að allir aðrir voru þar, ekki af því að þeir báru saman valkostina. Fáir hafa látið tæknina vinna alvöru verkefni fyrir sig.

Ef þér finnst þetta yfirþyrmandi þá ertu ekki ein um það. Eitthvað nýtt kemur í hverri viku og það er freistandi að hugsa að það sé orðið of seint að byrja. Ég hugsa oft að þetta sé örugglega eins og þegar internetið kom. Þá vissi enginn almennilega hvar átti að byrja og sumir töldu þetta bólu sem myndi springa, en í dag notum við það öll án þess að hugsa út í það. Sama bylgja er að koma núna, bara hraðar. Fyrirtækin fjögur eru líka í harðri samkeppni og um leið og eitt kynnir eitthvað nýtt fylgja hin eftir, svo tólin eru líkari en umræðan gefur til kynna. Það er samt aldrei of seint að byrja, munurinn liggur í því að byrja yfirhöfuð. Það var kveikjan að þessari grein, einföld skýring svo þú getir valið á milli tólanna og byrjað.

Fjögur tól, fjögur fyrirtæki

Einfaldasta leiðin til að hugsa þetta: þetta eru fjögur tól frá fjórum tæknifyrirtækjum.

Claude er frá Anthropic. Það er minnst þekkt á Íslandi af þessum fjórum en hjá fólki sem vinnur mikið með gervigreind er það oft í uppáhaldi. Styrkurinn liggur í vönduðum texta, vinnu með löng skjöl og því að Claude getur unnið heil verkefni fyrir þig í stað þess að svara bara spurningum. Þú getur til dæmis látið það fara í gegnum möppu af skjölum, taka saman niðurstöður og skila tilbúnu skjali.

ChatGPT er frá OpenAI. Það var fyrst á markað, er langþekktast og enn með flesta notendur, þó að forskotið hafi minnkað hratt síðasta árið. Ef einhver segist „nota gervigreind“ er líklegast að viðkomandi eigi við ChatGPT. Það er fjölhæft, gott í hugmyndavinnu og spjalli og stendur sig í meðallagi eða betur í nánast öllu. Þú getur til dæmis talað við það í símanum eins og manneskju og látið það henda í þig tuttugu hugmyndum að gjöf, ferðaplani eða kynningu í göngutúrnum.

Gemini er frá Google. Styrkurinn liggur annars vegar í því hvar það býr (innbyggt í Gmail, Docs, Sheets og Android símann þinn) og hins vegar í myndagerð þar sem það er fremst af þessum fjórum. Þú getur látið það draga saman langan tölvupóstþráð beint í Gmail eða búið til mynd fyrir kynninguna þína. Ef fyrirtækið þitt er í Google Workspace er Gemini nú þegar við hliðina á þér í vinnunni.

Copilot er frá Microsoft og hér liggur algengasti misskilningurinn. Microsoft notar að mestu líkön frá öðrum fyrirtækjum og lengst af hefur Copilot keyrt á sömu líkönum frá OpenAI og ChatGPT gerir, svo fólk sem notaði Copilot var í raun að nota ChatGPT í öðrum umbúðum. Frá því í vor getur Copilot í Evrópu líka keyrt á Claude líkönum frá Anthropic. Tólið er fellt inn í Word, Excel, Outlook, Teams og Windows. Þess vegna svara ChatGPT og Copilot oft áþekkt, en Copilot þekkir skjölin þín í Microsoft 365.

Undir húddinu: tól og líkan er ekki það sama

Öll þessi tól eru umgjörð utan um mállíkan, tæknin sem svarar þér. Anthropic á Claude líkönin, OpenAI á GPT líkönin, Google á Gemini líkönin. Microsoft er undantekningin, risinn sem notar að mestu líkön frá öðrum. Líkönin uppfærast svo hratt að útgáfunúmerin skipta litlu máli fyrir venjulegan notanda. Það sem skiptir máli er hvað þú getur gert með þeim.

Ólíkar áttir, ólík gildi

Fyrirtækin fjögur stefna líka í ólíkar áttir og fyrir mörg okkar skiptir það máli. OpenAI keyrir á hraða og útbreiðslu og samdi í vetur við bandaríska varnarmálaráðuneytið um notkun tækninnar í lokuðum hernaðarkerfum, samningur sem tæplega hundrað starfsmenn fyrirtækisins mótmæltu opinberlega. Anthropic var einmitt stofnað af fólki sem hætti hjá OpenAI af því að það vildi þróa gervigreind af meiri ábyrgð. Sú stefna sést í verki: fyrirtækið neitaði að leyfa að Claude yrði notað til fjöldaeftirlits eða í sjálfvirk vopn, þrátt fyrir að Pentagon hafi rift samningi við fyrirtækið og reynt að útiloka það. Notendum Claude fjölgaði hratt í kjölfarið. Það er stór ástæða þess að Claude hefur verið svona mikið í umræðunni undanfarið. Google og Microsoft eru fyrst og fremst að fella gervigreindina inn í tólin sem við notum nú þegar.

Hvernig velurðu?

Öll fjögur duga vel í einföldustu notkunina, að spyrja spurninga og fá texta til baka. Ef það er allt sem þig vantar geturðu valið eftir því hvar þú vinnur nú þegar: Claude eða ChatGPT ef þú vilt bara byrja einhvers staðar, Gemini í Google Workspace, Copilot í Microsoft 365. Ég heyri samt oftast kvartanir yfir Copilot, bæði hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Ef Copilot er eina tólið sem þú hefur prófað þá skaltu ekki dæma gervigreind út frá því.

Stóra breytingin í gervigreind liggur samt annars staðar: í að láta hana vinna fyrir þig frá upphafi til enda, ekki bara svara spurningum. Þar er munurinn á tólunum mestur og hann breytist hratt, svo það borgar sig að fylgjast með.

Mín eigin niðurstaða, eftir að hafa unnið með þau öll: ég elska Claude, ekki af tilviljun heldur af því það hefur unnið stærstu og flóknustu verkefnin mín án þess að ég þurfi að leiðrétta það aftur og aftur. Það er ástæðan fyrir því að ég kenni á það í dag, ekki öfugt.

Mitt ráð: ekki kaupa áskrift að þeim öllum. Veldu eitt, notaðu það í alvöru verkefni í tvær vikur og sjáðu hvað gerist. Munurinn á fólki sem hefur gagn af tólunum og fólki sem hefur það ekki liggur nánast aldrei í því hvaða tól varð fyrir valinu, heldur í því hvort það byrjaði.

Mig langar að kenna þér þetta

Ég kenni einmitt á þetta á Claude námskeiðunum mínum. Tveir morgnar á íslensku, engin forkunnátta og engin forritun. Stór partur af námskeiðinu eru verkefni, þú vinnur í þínum eigin og ferð heim með Claude sem gerir handavinnuna fyrir þig. Ertu að hugsa fyrir heilan vinnustað? Þá er fyrirtækjanámskeiðið rétta leiðin.

Sjá námskeiðið
Allar greinar