Tveir morgnar, ný leið til að vinna
Á námskeiðinu förum við frá því að spyrja gervigreind spurninga yfir í að láta hana vinna með okkur á skipulagðan hátt. Stór partur af námskeiðinu eru verkefni. Þú vinnur í þínum eigin verkefnum í tölvunni þinni og ferð heim með það sem þú bjóst til:
- Þú lætur Claude sjá um leiðinlegu verkefnin svo þú hafir tíma í það sem skiptir máli.
- Þú býrð til þína eigin CLAUDE.md, samhengisskrá sem Claude les og man alltaf.
- Samhengisverkfræði: hvernig þú gefur Claude réttu upplýsingarnar frá byrjun.
- Þú setur reglur svo Claude svari alltaf í þínum tón og á þínum forsendum.
- Þú smíðar færni (e. skills) sem vinna heil ferli fyrir þig með einni skipun.
- Þú tengir tólin þín, setur verkefni á sjálfvirka dagskrá og býrð til mælaborð.
Á námskeiðinu vinnum við í Claude Cowork, sem virkar bara í Claude forritinu í tölvunni, sæktu forritið fyrir námskeiðið. Viltu vita meira? Öll dagskráin, hvað þú lærir og allar nánari upplýsingar eru á Tix.
Skoða dagskrána á TixFræðslumyndbönd
Ég deili reglulega myndböndum og ráðum um Claude á mannamáli. Þú finnur fleiri á TikTok.
Dæmi um fólk sem hefur komið til mín
- Lögfræðingar
- Kennarar
- Markaðsfólk
- Stjórnendur
- Leikskólakennarar
- Frumkvöðlar
- Verkefnastjórar
Öll velkomin!
Þórdís Jóna Ingigerðardóttir
Þórdís Jóna Ingigerðardóttir er tölvunarfræðingur, frumkvöðull og stofnandi Revera. Hún hefur starfað í hugbúnaðargeiranum í áratug og leitar stöðugt leiða til að auka skilvirkni. Á námskeiðinu kennir hún það sem hún hefur lært af því að vinna með gervigreind. Hún hefur kennt 3 námskeið sem voru öll uppseld.
Ég hef áhuga á öllu svo ég er líka jógakennari og reiki heilari, ef þú ert heppinn heila ég þig í leiðinni.
Í fjölmiðlum: viðtal á mbl.is og Morgunútvarpið á RÚV.
Það sem þátttakendur segja
„Frábært námskeið sem gaf mér góð tök á Claude strax frá fyrsta degi námskeiðs og ég gat strax nýtt mér það sem ég lærði. Þórdís er einstaklega góður kennari og námskeiðið vel upp byggt. Maður fékk aðgang að efni sem hún hefur verið að byggja upp allt frá því Claude kom út sem er alveg ótrúlega dýrmæt vitneskja. Ég mæli alveg hiklaust með þessu fyrir öll þau sem vilja læra á gervigreindarverkfæri á skemmtilegan og aðgengilegan hátt!"Hildur Björk Scheving, markaðsstjóri Prís
„Námskeiðið var mjög gagnlegt, Þórdís leiddi okkur áfram á skipulegan, styðjandi og skemmtilegan hátt. Andrúmsloftið á námskeiðinu var hvetjandi og óþvingað því Þórdís hefur góða nærveru og er frábær kennari. Eftir námskeiðið erum við að stíga okkar fyrstu skref í að nota Claude sem vinnutól við fjölbreytt verkefni í síbreytilegu og krefjandi skólaumhverfi. Við stefnum á framhaldsnámskeið."Árdís Hrönn og Inga Sif, skólastjórnendur í leikskólanum Tjarnarseli í Reykjanesbæ
Talað og skrifað um Claude
Ég hef fengið að segja frá Claude og námskeiðinu víða undanfarið.
Einstaklingar og fyrirtæki
Einstaklingar
Næstu námskeið: 31. ágúst–1. september og 7.–8. september.
Þú getur tryggt þér miða á Tix. Viltu vita meira? Kíktu inná Tix, þar er öll dagskráin, hvað þú lærir og allar nánari upplýsingar.
Taktu með þér tölvu og vertu búin að sækja Claude forritið í hana, við vinnum í Claude Cowork sem virkar bara í forritinu, ekki í vafranum.
Kaupa miða á TixFyrirtækjanámskeið
Námskeiðið kennt hjá ykkur eða í Borgartúni 29, sérsniðið að ykkar tólum og verkferlum, fyrir allt að 15 þátttakendur.
- Undirbúningsfundur um markmið og tól
- Tveir kennsludagar í röð
- Þriggja tíma eftirfylgni næstu vikur
Allt að 90% styrkur: mörg stéttarfélög og starfsmenntasjóðir styrkja námskeið sem þetta, en upphæðin fer eftir sjóði og þinni stöðu. Einstaklingar kanna réttinn hjá sínu félagi (t.d. VR, Eflingu eða Sameyki), fyrirtæki í gegnum Áttin. Ég sendi reikning og staðfestingu á þátttöku með tímafjölda fyrir umsóknina. Sjá hvað er styrkhæft.
Algengar spurningar
Hvað kostar Claude námskeiðið?
Miði fyrir einstaklinga kostar 79.900 kr. og er seldur á Tix. Fyrirtækjanámskeið, kennt hjá ykkur eða í Borgartúni 29 og sérsniðið að ykkar tólum, kostar 1.790.000 kr. + VSK fyrir allt að 15 þátttakendur.
Getur stéttarfélagið mitt tekið þátt í kostnaðinum?
Allt að 90%. Mörg stéttarfélög og starfsmenntasjóðir styrkja námskeið sem þetta, en upphæðin fer eftir sjóði og þinni stöðu, svo kannaðu réttinn þinn hjá þínu félagi (t.d. VR, Eflingu eða Sameyki). Fyrirtæki sækja um í gegnum Áttin. Ég sendi reikning og staðfestingu á þátttöku með tímafjölda fyrir umsóknina.
Hvað ef ég kemst ekki?
Ekkert stress, sendu mér línu á thordis@revera.is og ég endurgreiði miðann. Þú ert líka alltaf velkomin á næsta námskeið í staðinn.
Hvað þarf ég að taka með mér?
Tölvu og Claude áskrift. Mikilvægt: sæktu Claude forritið í tölvuna áður en námskeiðið byrjar, við vinnum í Claude Cowork sem virkar bara í forritinu, ekki á claude.ai í vafranum.
Hvar og hvenær er námskeiðið kennt?
Í Borgartúni 29 í Reykjavík, tveir morgnar í röð kl. 9–12. Gengið er inn vinstra megin við mathöllina, upp á aðra hæð og til vinstri. Næstu námskeið eru 31. ágúst–1. september og 7.–8. september.
Þarf ég að kunna eitthvað á gervigreind fyrir?
Nei, engin forkunnátta er nauðsynleg. Námskeiðið er hugsað fyrir fólk í alls konar störfum sem vill láta gervigreind vinna fyrir sig, allt kennt á mannamáli.
Af hverju Claude en ekki ChatGPT?
Ég kenni á Claude því hann er sterkastur í að vinna fyrir þig, með Claude Cowork vinnur hann beint í skjölunum og tólunum í tölvunni þinni í stað þess að svara bara spurningum í vafra. Aðferðirnar sem þú lærir á námskeiðinu (samhengi, reglur og færni) nýtast þér samt í allri gervigreind.
Hvernig virka fyrirtækjanámskeið?
Við byrjum á undirbúningsfundi um markmið, tól og þátttakendur, svo kenni ég tvo daga í röð hjá ykkur eða í Borgartúni 29 og fylgi náminu eftir með þremur tímum næstu vikur. Sendu mér línu á thordis@revera.is.