Grein

Hvað er Claude?

28. september 2026

Ef þú hefur lesið greinina Hvað er gervigreind? þá veistu að flest forritin sem fólk talar um eru tungumálalíkön. Claude er eitt þeirra. Ég nota það allan daginn, kenni á það og mæli með því við alla sem spyrja mig hvar þau eigi að byrja. Þú skalt vita strax að ég er ekki hlutlaus. Hér er það sem Claude er, hvað það gerir vel og hvernig þú byrjar.

Claude er gervigreindartól frá Anthropic

Claude AI er búið til af bandaríska fyrirtækinu Anthropic. Þú notar það í vafranum á claude.ai eða í forriti í símanum og tölvunni. Þú skrifar til þess eins og þú værir að skrifa skilaboð og það svarar. Það les texta sem þú límir inn og skjöl sem þú hleður upp. Það skrifar íslensku og skilur íslensku sem þú skrifar í flýti.

Á markaðnum eru fleiri tól: Claude, ChatGPT, Gemini og Copilot. ChatGPT er þekktast og mjög fjölhæft, flestir hafa prófað það einhvern tímann. Þau eru öll ágæt. Ég mæli samt með Claude sem byrjunarpunkti og hér eru ástæðurnar.

Það sem Claude gerir vel

Textinn er vandaður. Claude skrifar íslensku sem hljómar eðlilega, tónninn passar og textinn les ekki eins og þýðing.

Það ræður við löng skjöl. Þú getur límt inn 80 blaðsíðna útboðsgögn, heilan tölvupóstþráð eða ársskýrslu og spurt beint út: hvað skiptir máli hér fyrir mig?

Það klárar heil verkefni. Þar liggur stóri munurinn frá því að nota gervigreind eins og spurningakassa. Þú getur sagt: hér er skýrslan, hér eru tölurnar frá síðasta ári, skrifaðu drög að kynningu fyrir stjórnarfundinn með samanburði á milli ára. Claude vinnur það frá upphafi til enda, ekki bara eitt svar í einu. Þess vegna elska ég þetta tól: það hefur unnið stærstu og flóknustu verkefnin mín án þess að ég þurfi að leiðrétta það aftur og aftur.

Svona nota ég Claude sjálf

Claude heldur utan um verkefnalistann minn og fer með mér í gegnum pósthólfið á morgnana. Ég byrjaði ekki svona. Ég byrjaði á því að láta Claude vinna með mér í öllu sem ég var að gera og lærði hægt og rólega hvað það gerir vel og hvað illa. Það er besta leiðin sem ég þekki til að læra á þetta: nota það í alvöru vinnu frekar en í prufuspurningum.

Svona byrjarðu

Farðu á claude.ai og skráðu þig. Svo skrifarðu á íslensku eins og þú talar. Ekki hugsa um „rétt“ orðalag eða sérstakar skipanir. Segðu hvað þú vilt: „Hér er póstur frá birgja sem ég skil ekki alveg, hvað er hann að biðja um?“ eða „Skrifaðu drög að svari, vinsamlegt en ákveðið, ég vil ekki lengri frest.“

Nokkur ráð úr kennslustofunni. Gefðu samhengi: hver þú ert, fyrir hvern textinn er og hvað þú vilt ná fram. Límdu inn allt sem skiptir máli. Lestu svarið gagnrýnið og biddu um breytingar, aftur og aftur ef þarf. Því meira sem þú notar það í eigin verkefnum, því betur lærirðu hvar það skín og hvar þú þarft að lesa yfir.

Ég vinn með fólki á öllum aldri og úr öllum áttum, líka fólki sem segist alls ekki vera tæknimanneskjur. Erla Rún Ingólfsdóttir, sem vinnur í bókhaldi hjá Brimborg, sagði eftir námskeiðið: „Frábært námskeið til að kynnast grunninum að Claude, nýja besta vini mínum.“ Við erum öll að læra á þetta á sama tíma og græðum mest á því að deila því sem virkar.

Höfundur er Þórdís Jóna Ingigerðardóttir, stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Revera, sem heldur Claude námskeið fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

Viltu læra þetta með öðrum?

Ég kenni Claude námskeið hjá Revera. Tveir morgnar á íslensku, engin forkunnátta og engin forritun. Þú vinnur í þínum eigin verkefnum og ferð heim með byrjun á samhengisskrá (claude.md skrá) og færni (e. skill) sem Claude notar áfram fyrir þig. Ertu enn að velta fyrir þér hvort þú þurfir fleiri en eitt tól? Því svara ég í greininni Þú þarft bara eitt gervigreindartól.

Sjá námskeiðið
Allar greinar