Grein

Hvað er gervigreind?

28. september 2026

Þú hefur heyrt orðið gervigreind í fréttum, á fundum og í kaffistofunni. Kannski hefur einhver í vinnunni sagt að þið þurfið að fara að nota hana. Samt útskýrir sjaldan nokkur hvað hún er. Ég kenni fólki á gervigreind, fólki sem vinnur við bókhald, innflutning, skólastarf og auglýsingagerð. Flest koma með sömu spurninguna: hvað er gervigreind eiginlega?

Svarið er einfaldara en þú heldur.

Gervigreind er forrit sem skilur og skrifar texta

Þegar fólk talar um gervigreind í dag á það oftast við tungumálalíkön. Það eru forrit eins og Claude, ChatGPT, Gemini og Copilot. Þau hafa lesið gríðarmikið magn af texta: bækur, vefsíður, greinar, samtöl. Út frá öllum þessum texta lærðu þau hvernig tungumál hangir saman.

Það sem forritið gerir er í grunninn einfalt: það spáir fyrir um hvaða orð kemur næst. Þú skrifar spurningu, forritið giskar á fyrsta orðið í svarinu, svo það næsta og svo koll af kolli. Þetta hljómar frumstætt en af því að forritið hefur lesið svona mikið eru giskin ótrúlega góð. Útkoman er texti sem les eins og manneskja hafi skrifað hann.

Þetta skiptir máli af einni ástæðu: forritið veit hvað er líklegt, ekki hvað er satt. Þess vegna getur það haft rangt fyrir sér, fullum fetum og án þess að blikka. Það getur búið til heimild sem er ekki til eða tölu sem passar ekki. Þú lest yfir það sem skiptir máli, alveg eins og þú myndir lesa yfir drög frá nýjum starfsmanni. Ábyrgðin er áfram þín.

Hvað getur hún gert fyrir þig á venjulegum degi?

Gleymdu vélmennum og vísindaskáldskap. Gervigreind vinnur best í hversdagslegu handavinnunni sem tekur tíma frá þér. Nokkur dæmi:

  • Tölvupóstþráður með 40 skilaboðum verður að samantekt á því hvað var ákveðið.
  • 5 punktar af fundi verða að fullbúinni fundargerð.
  • Það sem er til í ísskápnum verður að vikumatseðli með innkaupalista.
  • 30 blaðsíðna skýrsla verður að stuttu yfirliti yfir það sem skiptir máli fyrir þína deild.
  • Umsókn sem þú skrifaðir í flýti verður skýrari, án þess að hljóma eins og einhver annar hafi skrifað hana.

Ekkert af þessu er flókið. Þú skrifar til hennar eins og þú myndir tala við samstarfsmann, á venjulegri íslensku, án nokkurra sérstakra skipana.

Já, hún skilur íslensku

Þetta er spurningin sem ég fæ oftast og svarið er já. Bestu tungumálalíkönin skilja íslensku og skrifa hana vel. Þú getur skrifað eins og þú talar, með slettum, með stafsetningarvillum, í flýti. Forritið nær samhenginu. Ég kenni námskeiðin mín á íslensku og fólk vinnur með Claude á íslensku allan tímann.

Gervigreind á Íslandi er ekki lengur eitthvað sem er á leiðinni. Fólk úr alls konar störfum er farið að nota hana í daglegri vinnu. Enginn er samt kominn með þetta á hreint, ekki ég heldur. Við erum öll að læra á þetta á sama tíma og það besta sem við getum gert er að hjálpast að.

Þú þarft ekki að vera tæknimanneskja

Ég er tölvunarfræðingur og get sagt þér að forritunarkunnátta skiptir litlu máli hér. Ég vinn með fólki á öllum aldri og úr öllum áttum, þar á meðal fólki sem segir strax í upphafi að það sé ekki tæknimanneskja. Þau prófa og hræðslan fer.

Anna Cristina, innflutningsfulltrúi hjá Brimborg, sagði eftir námskeiðið: „Fór inn í þetta með óljósa hugmynd um hvað gervigreind er og hvernig hægt er að láta hana aðstoða mig í vinnunni og heima.“ Þessi óljósa hugmynd er staðan hjá flestum sem koma til mín. Hún skýrist um leið og þú byrjar að prófa.

Svona byrjarðu í dag

Veldu eitt forrit. Ég mæli með Claude, ég kenni á það og er því ekki hlutlaus. Skráðu þig inn. Taktu eitt leiðinlegt verkefni sem bíður þín núna, tölvupóst sem þú hefur frestað eða skýrslu sem þú nennir ekki að lesa. Límdu inn, skrifaðu á íslensku hvað þú vilt og lestu svarið. Biddu um breytingar ef þér líkar það ekki.

Þú þarft ekki að skilja tæknina til að nota hana. Þú þarft að prófa.

Höfundur er Þórdís Jóna Ingigerðardóttir, stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Revera, sem heldur Claude námskeið fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

Viltu læra þetta almennilega?

Ég kenni Claude námskeið hjá Revera. Tveir morgnar á íslensku, engin forkunnátta og engin forritun. Þú vinnur í þínum eigin verkefnum og ferð heim með byrjun á samhengisskrá (claude.md skrá) og færni (e. skill). Viltu lesa meira fyrst? Í greininni Hvað er Claude? útskýri ég tólið sem ég mæli með að þú byrjir á.

Sjá námskeiðið
Allar greinar